15. desember 2014
15. desember 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kröpp lægð nálgast landið í nótt
Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á slæmum veðurhorfum fyrir suður- og vesturland á morgun,þriðjudag:Í nótt nálgast kröpp lægð af Grænlandshafi. Hvessir þá af suðaustri og fer að snjóa sunnan- ogvestanlands í fyrramálið. Eftir hádegi nær suðaustanáttin víða 18-23 m/s sunnan- og vestanlandsog snjóar talsvert, en skammvinn hláka kemur í kjölfarið og rignir þá um tíma viðsjávarsíðuna. Annað kvöld snýst í suðvestan 8-15 m/s með éljagangi.
Vert er að hafa í huga að í hvössum vindi og ofankomu verður skyggni mjög lítið oglíklegt að færð spillist. Sjá nánar á http://www.vedur.is/