Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. ágúst 2025

ION Adventure hótel á Nesjavöllum

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun ION Adventure hótels á Nesjavöllum, Grímsnes- og Grafningshreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 25. september 2025.