23. október 2008
23. október 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hvassviðri á Snæfellsnesi
Lögreglan varar vegfarendur á Snæfellsnesi við að vera mikið á ferðinni síðdegis og í kvöld. Veðurstofan hefur spáð norðan 18-25 m/s síðdegis með slyddu og síðan snjókomu. Vindur mun síðan snúast í norðvestan og hiti um frostmark. Gera má ráð fyrir mjög slæmu veðri í Staðarsveit. Fólk er hvatt til þess að huga að lausamunum utandyra.