Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. febrúar 2025

Hringvegur um Hornafjörð - aukin efnistaka við Fjarðará, Sveitarfélagið Hornafjörður

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Hringvegur um Hornafjörð - aukin efnistaka við Fjarðará, Sveitarfélaginu Hornafirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 10. mars 2025.