Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. apríl 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hljóðbókasafnið styður átakið Tími til að lesa

Hljóðbókasafn Íslands hvetur lánþega sína til að taka þátt í átakinu Tími til að lesa, þar sem börn og full­orðnir eru hvött til að nýta til lest­urs þann tíma sem gefst við nú­ver­andi aðstæður.

Á vefsvæðinu https://timitiladlesa.is/ þar sem Íslendingar eru hvattir til að skrá allan sinn lestur út aprílmánuð, geta þátttakendur fylgst með sameiginlegum lestri þjóðarinnar frá degi til dags. Markmiðið, fyrir utan að lesa sér til ánægju, er að fá árangurinn skráðan í heimsmetabók Guinness. Munum að hlustun á hljóðbók er líka lestur.