18. janúar 2016
18. janúar 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi vikuna 12. til 18. janúar 2016
Á föstudag var tilkynnt til lögreglu að fólksbifreið hefði verið stolið í Hveragerði fyrr um nóttina. Snemma um morguninn komu tveir menn í bensínstöð í Breiðholti og tóku bensín á bifreiðina. Þeir fóru inn í bensínstöðina og ætluðu að kaupa vörur en árvökull starfsmaður sá að ekki var allt með felldu og tók kortið. Síðar um daginn stöðvuðu lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu akstur bifreiðarinnar. Ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum og var að auki eftirlýstur af lögreglu. Bifreiðin komst óskemmt í hendur eiganda síns.
Í síðustu viku voru skráð fimm slys, öll í Árnessýslu. Flest þeirra voru vegna hálku. Lögreglumenn voru kallaðir til vegna fjórtán umferðaróhappa.
Sex ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur, þrír fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.