Fara beint í efnið

10. mars 2025

Þessi frétt er meira en árs gömul

Heilbrigðismál í brennidepli: Ráðherra og þingmenn í heimsókn á HSS

Nýafstaðin kjördæmvika var viðburðarík hjá HSS og fengu heilbrigðismál á Suðurnesjum verðskuldaða athygli ráðamanna.

Þann 26.febrúar tók HSS á móti heilbrigðisráðherra og þingmönnun Samfylkingarinnar og þann 28.febrúar heimsóttu þingmenn Viðreisnar stofnunina. Merkja mátti mikinn áhuga gestanna á starfsemi HSS sem og þróun heilbrigðismála í umdæminu og voru umræður líflegar.

Forstjóri kynnti stefnu HSS til ársins 2030, innleiðingu hennar og stefnuáherslur fyrir árið 2025.


Staða ýmissa mála var rædd en þar má sérstaklega nefna:

  • Þjónusta heimahjúkrunar

  • Heilsugæsluþjónusta

  • Heilsueflandi móttökur og sérstaklega umfang og gæði sykursýkismóttöku

  • Stórbætt þjónusta með tilkomu nýrrar slysa- og bráðamóttöku

  • Sálfélagsleg þjónusta

  • Árangur í rekstri og fjárhag stofnunarinnar 2024

Farið var yfir helstu áskoranir sem stofnunin stendur frammi fyrir og líflegt samtal var við gesti um útfærslu mögulegra lausna og stuðning.

Á Suðurnesjum eru um 31.000 íbúar og hefur þeim fjölgað ört undanfarin ár.