Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. mars 2025

Hagræðing í ríkisrekstri - Útvistun eftirlits

Aukin útvistun opinbers eftirlits meðal tillaga hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.

Þann 4. mars síðastliðinn voru birtar 60 tillögur starfshóps ríkisstjórnarinnar um hagræðingu í ríkisrekstri.

Þar á meðal er tillaga um útvistun faglegs eftirlits með ýmsum þáttum atvinnulífs til faggiltra aðila á einkamarkaði.

ISAC og ýmsir hagsmunaaðilar hafa árum saman talað fyrir aukinni útvistun opinbers eftirlits. Því er afar ánægjulegt að sjá þessa viðurkenningu á því að útvistun opinbers eftirlits geti sparað ríkinu umtalsverða fjármuni.

Sjá bls. 55 í tillögum hagræðingarhópsins.