Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hæðarslár á Breiðholtsbraut

Vegna byggingar göngubrúar milli Seláss og Norðlingaholts hafa verið settar upp hæðarslár á Breiðholtsbraut í báðar áttir, sunnan hringtorgs við Rauðavatn. Fyrra hliðið er með skynjurum sem setja af stað blikkljós og flautur á seinna hliðinu. Á seinna hliðinu eru slár yfir götuna í hæð 4,35 yfir malbiki.

Hámarkshraði í gegnum vinnusvæði er 30 km/klst. Hægt er að aka hjáleið um Suðurlandsveg og Norðlingabraut.