26. júní 2026
26. júní 2026
Góður árangur í núll aðskilnaði á Vökudeild
Á Vökudeild var í vetur unnið í gæðaverkefninu núll aðskilnaður sem gengur út á að bæði fjölga börnum sem ekki voru aðskilin foreldrum eftir fæðingu og hófu húð við húð meðferð strax, og sömuleiðis stytta tímann fram að fyrstu húð við húð meðferðinni.

Birna Rut Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Elín Gróa Guðjónsdóttir aðstoðardeildarstjóri skoðuðu börn sem þurftu að leggjast inn á Vökudeild og þá sérstaklega þau sem þurftu CPAP meðferð eftir fæðingu. Börn fædd eftir minna en 32 vikna meðgöngu og mikið veik börn voru undanskilin.
Birna Rut og Elín Gróa gerðu tvær íhlutanir í upphafi verkefnisins síðasta haust: Leiðbeiningar fyrir CPAP á fæðingarstofu, skilmerki um hvaða börn gætu hafið CPAP meðferð á fæðingarstofu, ásamt kynningu á hugtakinu núll aðskilnaður og mikilvægi þess. Í mars sl. kom í ljós að börnum sem fóru beint húð við húð hafði fjölgað úr 18,5% í 58,3% og meðaltími frá því barn fór húð við húð lækkaði úr 4 klst. og 40 mín. í 1 klst. og 23 mín. Í kjölfarið var þriðja íhlutunin gerð sem fólst í því að kynna niðurstöðurnar fyrir starfsfólki Vökudeildar og setja markmið fyrir maímánuð um að 80% barna sem uppfylltu skilyrðu hæfu húð við húð meðferð strax eftir fæðingu. Það markmið náðist og gott betur, alls fóru 83% beint í fang eftir fæðingu.
Húð við húð meðferð er einföld og áhrifarík meðferð til að styðja við aðlögun nýbura að lífi utan móðurkviðar. Meðferðin er mikið rannsökuð og hefur m.a. verið tengd við jákvæða tengslamyndun milli foreldra og barns, árangursríka brjóstagjöf og stöðugleika í lífsmörkum og hitastjórnun barns.