Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. maí 2025

Geymsla skipagasolíu við Helguvík og stækkun Helguvíkurhafnar, Reykjanesbæ

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að geymsla skipagasolíu við Helguvík og stækkun Helguvíkurhafnar, Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 16. júní 2025.