Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. júní 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gæsluvarðhald framlengt – Ísafjörður.

Nú í morgun úrskurðaði Héraðsdómur Vestfjarða, að kröfu lögreglustjórans á Vestfjörðum, að fanginn sem verið hefur í gæsluvarðhaldi á Ísafirði siðan á laugardaginn var, skuli sæta gæsluvarðhaldi til 3. júlí nk. Krafa lögreglustjórans var byggð á 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála.

Rannsókn málsins miðar vel og er gert ráð fyrir að málið verði sent ríkissaksóknara til ákvörðunar innan örfárra daga.