Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fundur EDPB í nóvember

57. fundur ráðsins var haldinn 18. nóvember 2021 í Brussel. Helstu atriði á dagskrá voru:

Lagt er upp með þrjú viðmið séu uppfyllt til vinnsla teljist til flutnings:

  • gagnaútflytjandi (ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili) fellur undir gildissvið persónuverndarreglugerðarinnar vegna vinnslunnar,

  • gagnaútflytjandi sendir eða gerir persónuupplýsingarnar aðgengilegar aðila sem flytur gögnin inn (annar ábyrgðaraðili, sameiginlegur ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili);

  • gagnainnflytjandinn er í þriðja landi eða er alþjóðleg stofnun.
    Auk þess er leiðbeiningunum ætlað að samræma þá túlkun sem lögð er í hugtakið flutningur

2. Yfirlýsing um stafræna þjónustupakka (e. digital services package) og gagnastefnu (e. Data Strategy) framkvæmdastjórnar ESB.

Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á þrjú atriði sem skoða þarf sérstaklega:

  • Skort á vernd á grundvallarréttindum og frelsi einstaklinga

  • Brotakennt eftirlit

  • Hætta á ósamræmi
    Í yfirlýsingunni er ítrekuð krafa ráðsins um að banna skuli hvers kyns notkun gervigreindar fyrir sjálfvirka auðkenningu á lífkennaupplýsingum á svæðum sem eru aðgengileg almenningi. Þá er löggjafinn einnig hvattur til að afnema einstaklingsmiðaðar auglýsingar í áföngum og að almennt bann ætti að vera við því að búin séu til persónusnið um börn.