Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. október 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál upplýst á Ísafirði

Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á tæplega 250 grömm af hassi, 44 ecstasytöflur og tæpt gramm af amfetamíni aðfaranótt miðvikudagsins 15. þessa mánaðar. Hluti efnisins fannst við leit lögreglu í bifreið sem tveir ungir menn komu akandi á úr Reykjavík, þá nokkrum klukkustundum áður. Hinn hluti efnisins fannst falinn á afviknum stað, utan dyra á Ísafirði.

Fíkniefnaleitarhundurinn Dollar tók þátt í leitinni.

Mennirnir voru í haldi lögreglunnar meðan rannsókn málsins stóð yfir og var sleppt að yfirheyrslum loknum síðdegis í gær. Þeir hafa báðir komið við sögu vegna fíkniefnamála áður.

Mennirnir hafa viðurkennt að hafa ætlað að bjóða efnið til sölu á norðanverðum Vestfjörðum.

Annar aðilanna er jafnframt grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna.