Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. nóvember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Enskukennarar á unglingastigi óskast í starfshóp

Nú stendur til hjá okkur að endurnýja námsefni í ensku á unglingastigi og þess vegna auglýsum við eftir enskukennurum á því stigi í starfshóp. Hlutverk starfshópsins verður að leggja fram tillögur um gerð á nýju námsefni í samvinnu við ritstjóra.

Mikilvægt er að umsækjendur hafi kennt ensku á unglingastigi og hafi skýra sýn á því hvert beri að stefna til framtíðar þegar kemur að námsefnisgerð í ensku.

Gert er ráð fyrir að starfhópurinn taki til starfa í byrjun janúar 2025 og skili af sér tillögum í byrjun febrúar 2025.

Umsóknarfrestur er til 25. nóvember næstkomandi. Umsóknir ásamt kynningarbréfi, skulu berast á netfangið skjalasafn@midstodmenntunar.is merkt starfshópur í ensku, unglingastig og nafni umsækjanda.

Nánari upplýsingar gefur Arna Guðríður Sigurðardóttir, sérfræðingur í námsefnisgerð: gurry@midstodmenntunar.is