Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. janúar 2026

Endurvinnsla á saltgjalli og gjallsandi, Grundartanga í Hvalfjarðarsveit

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurvinnsla á saltgjalli og gjallsandi, Grundartanga í Hvalfjarðarsveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. febrúar 2026.