Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. desember 2025

Endurbræðsla áls - framleiðsluaukning í Straumsvík, Hafnarfirði

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurbræðsla áls, framleiðsluaukning ISAL í Straumsvík, Hafnarfirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. janúar 2026.