15. júní 2026
15. júní 2026
Drónabann yfir Þingvöllum vegna tónleika
Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur tilkynnt um bann við flugi dróna og annarra fjarstýrðra loftfara á Þingvöllum í tengslum við tónlistarhátíðina Bergmál þann 20. júní 2026.

Svæðið sem bannið nær til er merkt með rauðri þekju á kortinu.
Drónabannið gildir frá kl. 8:00 laugardaginn 20. júní til kl. 3:00 sunnudaginn 21. júní.
Allt drónaflug er bannað á þessu svæði nema með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Suðurlandi.
Senda skal undanþágubeiðnir til Lögreglustjórans á Suðurlandi í gegnum netfangið: sudurland@logreglan.is
Þeim þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar:
Tilgangur drónaflugs
Nafn fjarflugmanns eða ábyrgðaraðila
Skráningarnúmer fjarflugmanns hjá Samgöngustofu (Operator ID)
Símanúmer og netfang
Tegund dróna
Skráningarmerki dróna (flight controller serial number / ID number)
Fyrirhugaður flugtími og flughæð
Beiðnir þurfa að berast eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 19. júní 2026.
Lögreglan mun starfrækja drónahópa sem sinna munu löggæslu og eftirliti úr lofti.
Virkt eftirlit verður haft með óleyfilegu drónaflugi. Fjarflugmenn sem gerast sekir um slíkt geta átt á hættu að dróni þeirra verði haldlagður og að viðkomandi verði gert að greiða sekt.
Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.