Fara beint í efnið

1. júlí 2026

Dróna- og flugbann vegna Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra hefur tilkynnt dróna- og flugbann á Hólum í Hjaltadal í tengslum við Landsmót hestamanna þann 5. – 12. júlí 2026.

Drónabannið gildir frá kl. 09:00 sunnudaginn 5. júlí til kl.23:00 sunnudaginn 12. júlí.

Allt drónaflug er bannað á þessu svæði nema með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra.

Senda skal undanþágubeiðnir til Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra í gegnum netfangið: nordurland.vestra@logreglan.is

Þeim þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar:

  • Tilgangur drónaflugs

  • Nafn fjarflugmanns eða ábyrgðaraðila

  • Skráningarnúmer fjarflugmanns hjá Samgöngustofu (Operator ID)

  • Símanúmer og netfang

  • Tegund dróna

  • Skráningarmerki dróna (flight controller serial number / ID number)

  • Fyrirhugaður flugtími og flughæð

Beiðnir þurfa að berast eigi síðar en kl. 1500 föstudaginn 3. júlí 2026.

Lögreglan mun starfrækja drónahópa sem sinna munu löggæslu og eftirliti úr lofti.

Virkt eftirlit verður haft með óleyfilegu drónaflugi. Fjarflugmenn sem gerast sekir um slíkt geta átt á hættu að dróni þeirra verði haldlagður og að viðkomandi verði gert að greiða sekt.

Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.

Með vísun í NOTAM A0519/26