18. desember 2023
18. desember 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Dómari við Mannréttindadómstól Evrópu heimsækir Hæstarétt
Í liðinni viku heimsótti Hæstarétt Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, og átti fund með dómurum og starfsmönnum réttarins.

Hún ræddi um starfsemi dómstólsins og gerði grein fyrir hve mörg mál frá Íslandi væru þar til meðferðar og hvernig þau skiptust eftir málaflokkum. Einnig svaraði hún fyrirspurnum og lýsti starfi sínu sem dómari við dómstólinn.