3. mars 2009
3. mars 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Bruni að Hlíðargötu 25 Neskaupstað
Um kl. 16:40 var tilkynnt um að eldur væri laus í íbúð á efrihæð að Hlíðargötu 25 í Neskaupstað. Lögregla og slökkvilið komu mjög fljótt á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn. Kona sem er íbúi í íbúðinni fékk snert af reykeitrun og var flutt á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til aðhlynningar og er líðan hennar góð eftir atvikum. Talsverðar skemmdir urðu á íbúðinni. Rannsókn á eldsupptökum stendur yfir.