Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. janúar 2026

Breytingar á fjárhæðum í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks

Þann 19. desember 2025 tók gildi ný reglugerð um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.

Samkvæmt reglugerð nr. 1493/2025 eru hámarksfjárhæð og lágmarksgreiðslur í sorgarleyfi frá og með 1. janúar 2026:

  • Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema

    900.000 kr.

    á mánuði.

  • Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna hækkar í

    207.708 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í 25-49% starfi)

  • Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna hækkar í

    275.688 kr

    . á mánuði. (Foreldrar í 50-100% starfi)

Samkvæmt reglugerð nr. 1493/2025 eru greiðslur sorgarstyrks til foreldra frá og með 1. janúar 2026:

  • Sorgarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna hækkar í

    138.086 kr.

    á mánuði. (Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli)

  • Sorgarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna hækkar í

    275.688 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í fullu námi)

Tengill á reglugerð nr. 1493/2025: https://island.is/stjornartidindi/nr/f4b7f699-9882-4f28-8d7e-9c39c393ccea