Fara beint í efnið

19. febrúar 2026

Bréf í pósthólfi um kílómetragjald

Bréf um kílómetragjald með titilinn Listi vegna bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds sem birt voru á þjónustusíðu Skattsins þann 18. febrúar sl. eru yfirlit yfir kílómetragjald sem var á eindaga 16. febrúar sl.

Hægt er að skoða yfirlit yfir skuldastöðu á Ísland.is undir fjármál. Einnig er hægt að skoða yfirlit yfir álagningu kílómetragjalds á þjónustusíðu Skattsins undir samskipti.

Ef þú hefur frekari spurningar má senda okkur línu á km@skatturinn.is.