Fara beint í efnið

12. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys varð á Fagradal, á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða

Banaslys varð á níunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell. Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman.

Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á átjánda ári lést. Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á átjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður.

Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu.

Hálka er á vettvangi. Lögreglan hefur nú að mestu lokið við vettvangsvinnu en enn eru tafir á umferð.