Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. júlí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys á Stokkseyri

Um kl. 15:00 í dag barst tilkynning um eld í húsbíl við íbúðarhús á Stokkseyri. Lögregla og slökkvilið fór þegar á staðin ásamt sjúkraflutningsmönnum en þegar þangað kom var bifreiðin alelda. Drengur fæddur 2012 sem var við leik í bílnum lest í brunanum.

Lögreglan á Suðurlandi ásamt tæknideild Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu vinna að rannsókn slyssins og eldsupptakanna. Ekki verða gefnar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.