Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átak gegn ölvunar- og fíkniefnaakstri

Hátt í þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á vettvangi og því gekk eftirlitið að mestu snuðrulaust fyrir sig. Þrír ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Nokkra athygli vakti hversu margir ökumenn höfðu ekki ökuskírteini meðferðis en slíkt kæruleysi kostar viðkomandi 5.000 kr.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.