12. október 2019
12. október 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandi
Alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesvegi var tilkynnt til lögreglu um kl. 13:00 í dag. Fimm erlendir ferðamenn slösuðust þar af tveir mjög alvarlega. Ökumaður bifreiðarinnar sem þeir voru í missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af veginum og valt nokkrar veltur við það. Hinir slösuðu voru fluttir með þyrlum og sjúkrabifreiðum af vettvangi. Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi ásamt því að rannsóknarnefnd umferðaslysa og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu komu á vettvang.
Uppfært 13.10.2019
Farþegi sem var í bifreiðinni hefur verið úrskurðaður látinn. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur enn yfir.