Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Alvarlegt umferðarlys á Vallavegi á Héraði.

Laust fyrir klukkan 08:00 í morgun var tilkynnt til lögreglunnar á Egilsstöðum um alvarlegt umferðarslys á Vallavegi um 10 km. sunnan við Egilsstaði. Þarna hafði fólksbifeið verið ekið út af veginum. Ökumaður , sem var einn í bifreiðinni var látinn þegar að var komið. Hann var á þrítugsaldri. Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum og rannsóknarnefnd umferðarslysa.

Ekki er að vænta frekari upplýsinga um málið að svo stöddu.