12. mars 2025
12. mars 2025
Alþjóðlegur dagur óráðs
Alþjóðlegur dagur óráðs er í dag, 12. mars.
Óráð er heilkenni sem einkennist af truflun á athygli, meðvitund, vitrænni getu og skyntúlkun. Með því að bregðast hratt og rétt við má koma í veg fyrir það og bæta batahorfur.
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Kristrúnu Kristinsdóttur, sjúkraliða á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild, sem fer yfir hið skyndilega hugarástand sem heilinn fer í við óráð og hvernig megi fyrirbyggja það.
Vissir þú…
að óráð lengir sjúkrahúsdvöl um viku að meðaltali
að vanvirkur sjúklingur er mjög líklega í lágstemmdu óráði
að til að meðhöndla óráð þarf að greina orsök sem alltaf er líkamleg
að allt að 50% skurðsjúklinga fara í óráð eftir aðgerð
Nánari upplýsingar um óráð má nálgast á vef Landspítala.
https://player.vimeo.com/video/1064723805?badge=0&autopause=0&player%5Fid=0&app%5Fid=58479