Fara beint í efnið

22. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Álit um heimild Hagstofu til upplýsingaöflunar vegna manntals

Persónuvernd hefur veitt álit um heimildir Hagstofu Íslands til öflunar persónuupplýsinga vegna gerðar manntals 2021.

Annars vegar lýtur álitið að öflun upplýsinga frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins um tegund fötlunar og hins vegar frá Orkuveitu Reykjavíkur um raforkusölu til einstaklinga. Komist er að þeirri niðurstöðu að hvoru tveggja upplýsingaöflunin sé heimil en minnt á að gera þarf viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinganna og gæta meðalhófs.

Álit Persónuverndar