26. febrúar 2019
26. febrúar 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Áfram leitað í og við Ölfusá. Nafn þess sem leitað er.
Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því í gærkvöldi heitir Páll Mar Guðjónsson fæddur 28. júlí 1968 til heimilis að Stekkholti 11 á Selfossi. Hann er ókvæntur og barnlaus. Aðstandendur hans vilja þakka viðbragðsaðilum umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina.
Veður til leitar hefur farið batnandi í dag og verður leitað fram í myrkur í kvöld. Aftur verður hafist handa við leit í fyrramálið ef ekkert finnst í dag.