Fara beint í efnið

21. febrúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Afbrotatölfræði LRH – fækkun innbrota

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúarmánuð 2013 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um þau tilteknu brot sem tilgreind eru í stefnu LRH og hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina það sem af er ári og á síðustu 13 mánuðum auk þess sem sjónum er beint að þróuninni á svæðum embættisins.

Í skýrslunni má m.a. lesa að þjófnuðum hefur fækkað um 5% samanborið við sama tímabil árið 2012 og innbrotum um 18%. Alls hafa verið skráðir 481 þjófnaður á höfuðborgarsvæðinu það sem af er árinu 2013, 137 innbrot, 189 eignaspjöll og 100 ofbeldisbrot. Fjöldi umferðarslysa er 51 það sem af er ári.

Skýrsluna má nálgast hér.