Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. mars 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Æfingalota löggæsluhunda í febrúar 2024

Æfingalota löggæsluhunda var haldin á höfuðborgarsvæðinu dagana 19. – 22. febrúar s.l.Æfingarnar fóru fram víðsvegar um borgina þar sem hundarnir voru æfðir í ýmiskonar leitum.

Síðasta daginn var svo brugðið út af vananum, slegið á létta strengi og fenginn gestakennari sem í þetta skiptið var að Auður Björnsdóttir, hundaþjálfari. Auður kynnti fyrir teymunum “Shaping”.

Hundateymin hittast með reglulegu millibili í æfingalotum sem þessari en markvisst gæðaeftirlit er haft með teymunum.

Yfirstjórn hundamála á landsvísu er hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra