Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

20 nýnemar hefja nám við grunnnámsdeild Lögregluskóla ríkisins

Þann 1. mars s.l. hófu 20 nýnemar nám á fyrstu önn grunnnámsdeildar Lögregluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur fjóra mánuði, því lýkur í lok júní 2011 og þá fara nemendurnir í starfsnám í lögreglunni.

Af þessum nýnemum hafa fimm starfað sem afleysingamenn í lögreglunni, allt frá rúmum 4 mánuðum til tæplega þriggja ára. Meðalaldur nýnemanna er 26,90 ár, 6 konur eru í hópnum eða 30%.

Starfsreynsla nýnemanna er margvísleg og má sem dæmi nefna kennslu, sölumennsku. pípulagnir, húsasmíði, einkaþjálfun, þjálfun í fimleikum og knattspyrnu, rafvirkjun, hermennsku, sjúkraflutninga og sjómennsku.

Meðal þess sem nýnemarnir hafa sem áhugamál eru íþróttir, útivera, hljóðfæraleikur, hestamennska, líkamsrækt, hnefaleikar, skotveiðar og ferðalög.

Aðalsteinn Bernharðsson, yfirþjálfari Lögregluskóla ríkisins, að kenna nýnemum að standa aftan við stólaen í grunnnámi skólans setjast nemendur ekki í sæti sín fyrr en kennari býður þeim til sætis

Aðalsteinn Bernharðsson, yfirþjálfari Lögregluskóla ríkisins, að kenna nýnemum að standa aftan við stóla

en í grunnnámi skólans setjast nemendur ekki í sæti sín fyrr en kennari býður þeim til sætis