Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. júlí 2005

Þessi frétt er meira en árs gömul

12 fíkniefnamál í Eyjum.

Þjóðhátíð gengur vel.

Eftir fyrsta sólarhringinn á Þjóðhátíð hafa komið upp 12 fíkniefnamál í Vestmannaeyjum. Í flestum tilfellum er um neysluskammta að ræða og hafa bæði fundist kannabisefni og amfetamín. Gífurleg fíkniefnalöggæsla er í Vestmannaeyjum þjóðhátíðardagana og eru fjórir fíkniefnaleitarhundar á svæðinu, en til samanburðar voru tveir leitarhundar í fyrra. Þrátt fyrir þetta eru málin færri en í fyrra. Ein líkamsárás hefur verið kærð og einn tekin fyrir meintan ölvunarakstur. Nóttin var með rólegra móti enda veður einmuna gott þrátt fyrir spár um annað. Þrír gistu fangageymslur í nótt, tveir vegna fíkniefnamála og einn sem handtekinn var vegna ölvunar og óspekta. Gestir á Þjóðhátíð eru að nálgast tíu þúsund að sögn mótshaldara og er enn að bætast við í dalinn.