Vinnueftirlitið: Vinnuslys
Geta fyrirtæki óskað eftir afriti af innsendri slysatilkynningu?
Vinnueftirlitinu er ekki heimilt að senda afrit af slysatilkynningum til atvinnurekanda eftir að henni hefur verið skilað inn til stofnunarinnar þar sem þar er að finna viðkvæmar persónulegar upplýsingar. Hinn slasaði fær afrit af tilkynningunni og getur atvinnurekandi óskað eftir afriti af tilkynningunni frá honum. Atvinnurekandi getur halað niður afriti af tilkynningunni við skráninguna.
Vakin er athygli á að atvinnurekanda ber að halda skrá hjá sér yfir öll slys og óhöpp sem gerast á vinnustaðnum.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?