Fara beint í efnið

Á að tilkynna slys sem verður á leið til og frá vinnu til Vinnueftirlitsins?

Slys sem eiga sér stað á leið til eða frá vinnu falla ekki undir vinnuslys í skilningi laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og ber því ekki að tilkynna til Vinnueftirlitsins. 

Slys sem eiga sér stað til eða frá vinnu, teljast þó vinnuslys í skilningi laga um slysatryggingar almannatrygginga og kjarasamninga.  

Atvinnurekanda er skylt að tilkynna slík slys til  Sjúkratrygginga Íslands í samræmi við lög um slysatryggingar almannatrygginga ef ætla má að slysið sé bótaskylt samkvæmt þeim lögum. 

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?