
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri í námsteymi hjá Endurmenntun HÍ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026
Verkefnisstjóri í námsteymi hjá Endurmenntun HÍ
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra í námsteymi hjá Endurmenntun HÍ. Verkefnisstjórinn er hluti af teymi sem vinnur að þróun og umsjón fræðslu og náms. Starfsfólk Endurmenntunar HÍ starfar við að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi. Með nýsköpun, góðum tengslum við atvinnulífið og traustan grunn í Háskóla Íslands hefur Endurmenntun HÍ verið í fararbroddi í símenntun á Íslandi í 40 ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
Nýsköpun og þróun námskeiða
Umsjón með gerð námskeiðslýsinga í samstarfi við kennara
Gerð fjárhags- og tímaáætlana og eftirfylgni með þeim
Þarfagreining fyrir fræðslu
Samskipti og samstarf við nemendur, kennara og samstarfsaðila við HÍ og í atvinnulífinu
Samningagerð við kennara námskeiða
Hæfniskröfur
Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
Reynsla af verkefnastjórnun á sviði fullorðinsfræðslu, náms eða viðburða er æskileg
Reynsla af vinnu við stafrænt fræðsluefni er æskileg
Reynsla af þarfagreiningu fyrir fræðslu er æskileg
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð samstarfs- og samskiptahæfni og þjónustulund
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Elín Vignir
Tölvupóstur: hildurelin@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri í námsteymi hjá Endurmenntun HÍ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026