
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Málastjóri með heilbrigðismenntun - Laugarás meðferðargeðdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026
Málastjóri með heilbrigðismenntun - Laugarás meðferðargeðdeild
Áhugasamur og metnaðarfullur málastjóri með heilbrigðismenntun og starfsleyfi óskast til starfa á Laugarásnum meðferðargeðdeild í geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð deild fyrir ungt fólk á aldrinum 18-35 ára með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi. Deildin er bæði legu- og dagdeild. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Á deildinni er sérstök áhersla lögð á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku allra fagstétta þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna. Starfið er laust frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu deildarinnar
Virk þátttaka í fjölfaglegu samstarfi og framþróun í starfi deildarinnar
Málastjórn fyrir einstaklinga sem sækja þjónustu sem felur í sér almenna uppvinnslu, greiningu á einkennum, færni og getu sem og gerð meðferðaráætlana
Virk þátttaka í fjölbreyttu fræðslustarfi
Markvisst samstarf með fjölskyldum/ aðstandendum
Sérverkefni sem tengjast starfi deildarinnar
Hæfniskröfur
Háskólamenntun og starfsleyfi í viðeigandi fagstétt svo sem þroskaþjálfun eða hjúkrun
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi og áhugi að starfa með ungu fólki
Mjög góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
Stundvísi, áreiðanleiki og lausnamiðun
Jákvæðni og sveigjanleiki gagnvart hinum ýmsu störfum sem til falla í starfsemi deildarinnar
Góð íslenskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Laugarás, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 90-100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Málastjóri með heilbrigðismenntun - Laugarás meðferðargeðdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026