
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemar í lýðheilsuvísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.06.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Doktorsnemar í lýðheilsuvísindum
Laus eru til umsóknar tvö full störf fyrir doktorsnema í lýðheilsuvísindum við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands. Stöðurnar eru styrktar af Rannís til þriggja ára og eru verkefnin unnin í samstarfi við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Doktorsverkefnin eru hluti af stóru rannsóknarverkefni, unnin í samvinnu við alþjóðlegt teymi vísindafólks, sem snýr að heilsu þeirra íbúa sem bjuggu við síendurteknar jarðhræringar og ógn af eldgosavirkni í Grindavík og þeim áhættu- og verndandi þáttum sem tengjast andlegri og líkamlegri heilsu þeirra. Annað doktorsverkefnið mun beinast að börnum og hitt að fullorðnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsaka áhrif náttúruhamfara á heilsu og þá áhættu- og verndandi þætti sem tengjast þeim
Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd rannsóknar, m.a. gagnaöflun með spurningalistum, lýðgrunduðum gagnagrunnum og eigindlegum viðtölum
Gagnagreining
Ritun vísindagreina og miðlun niðurstaðna í samstarfi við innlent og alþjóðlegt vísindasamfélag
Hæfniskröfur
Meistaragráða í lýðheilsuvísindum, faraldsfræði, sálfræði, eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Góð reynsla af gagnagreiningu í tölfræðiforritinu R eða sambærilegum forritum
Reynsla af rannsóknum á sviðinu er kostur
Góð færni í ritaðri og talaðri ensku
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám í Lýðheilsuvísindum eða faraldsfræði, á Heilbrigðisvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindasvið
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Áætlað er að störfin hefjist í september eða eftir samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).
Ferilskrá.
Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
Yfirlit yfir birtingar.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórhildur Halldórsdóttir
Tölvupóstur: thorhildurh@ru.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemar í lýðheilsuvísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.06.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026