Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í hagfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Doktorsnemi í hagfræði

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Hagfræðideild, tímabundið til tveggja ára. Starfið er styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og er unnið innan rannsóknarteymis um tekjuuppbót (ConCIV, Consortium on Compensating Income Variation). Verkefnið liggur á mörkum vinnumarkaðshagfræði og velferðarhagfræði og notar aðferð tekjuuppbótar (compensating income variation, CIV) til að meta hagrænt virði menntunar og starfsloka út frá áhrifum þeirra á huglæga velferð einstaklinga og fjölskyldumeðlima þeirra. Doktorsneminn mun vinna með langsniðsgögn úr áströlsku HILDA-rannsókninni og nýta náttúrulegar tilraunir, meðal annars breytingar á skólaskyldu og lífeyrisaldri, til að greina orsakasambönd. Verkefnið byggir á fyrri vinnu ConCIV-hópsins við peningalegt mat á ómarkaðslegum gæðum og tengist alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi hópsins. Rannsókninni verður stýrt af aðalleiðbeinanda doktorsnemans, dr. Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur, prófessor í hagfræði, en doktorsneminn verður hluti af stærra rannsóknarteymi innlendra og erlendra sérfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við aðalleiðbeinanda og rannsóknarteymi.

  • Greining á megindlegum gögnum úr ástralska gagnagrunninum HILDA.

  • Miðlun rannsóknarniðurstaðna, einkum í formi vísindagreina og doktorsritgerðar (sem byggir á a.m.k þremur greinum sem skrifaðar eru til birtingar í viðurkenndum alþjóðlegum vísindatímaritum), en einnig í formi þátttöku í innlendu og alþjóðlegu fræðasamfélagi, fyrirlestrum á ráðstefnum og miðlun meðal almennings.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í hagfræði eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af megindlegum rannsóknaraðferðum og gagnagreiningu.

  • Góð enskukunnátta.

  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Möguleiki er á lægra starfshlutfalli með samkomulagi við aðalleiðbeinanda.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Hagfræðideild á Félagsvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt.

Skila þarf umsókn og umsóknargögnum á ensku.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókninni:

  • Kynningarbréf (um það bil 2 blaðsíður) á ensku þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og hvað viðkomandi hefur fram að færa við mótun og vinnslu þess.

  • Ferilskrá (1-2 bls.) á ensku þar sem fram kemur starfsreynsla, hæfni tengd verkefninu og ritaskrá ef við á.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (BA/BSc og MA/MSc) og námsferilyfirlit.

  • Afrit af meistararitgerð eða rannsóknargreinum ef við á.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila og hvernig megi nálgast þá.

Aðrar upplýsingar:

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir

prófessor

Tölvupóstur: ta@hi.is

Halldóra F Sigurgeirsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: halldoraf@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í hagfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026