
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í þróunar og umbótaverkefnum í hjartaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
17.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Hjúkrunarfræðingur í þróunar og umbótaverkefnum í hjartaþjónustu
Vilt þú leiða breytingar og taka þátt í að móta framtíð göngudeildarþjónustu?
Hjartaþjónusta Landspítala leitar að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að sinna þróunar, gæða og umbótaverkefnum með sérstaka áherslu á stefnumótun göngudeilda, stafræna þróun og þjónustuumbætur.
Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun hjartaþjónustu til framtíðar með þátttöku í stefnumótun, innleiðingu nýrra lausna, gæðastarfi og verkefnum sem styðja við bætta upplifun sjúklinga og skilvirkari þjónustu.
Starfið er laust samkvæmt samkomulagi og er starfshlutfall 80 til 100% eftir nánara samkomulagi.
Af hverju að velja okkur?
Áhrif og þróunTækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun hjartaþjónustuVirk þátttaka í stefnumótun og umbótastarfiFjölbreytt verkefni á sviði gæða, þjónustuþróunar og stafrænnar umbreytingar
Frábær vinnustaður36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnuSveigjanlegt og sjálfstætt starfNáið samstarf við stjórnendur og þverfagleg teymi
Helstu verkefni og ábyrgð
Þú verður lykilþátttakandi í þróun framtíðarþjónustu hjartaþjónustunnar.
StefnumótunTekur þátt í mótun stefnu, þjónustulíkana og framtíðarsýnar fyrir göngudeildir hjartaþjónustu.ÞróunarverkefniLeiðir og tekur þátt í umbóta og þróunarverkefnum sem styðja við aukin gæði, öryggi og skilvirkni.Stafrænar lausnirTekur þátt í þróun og innleiðingu stafrænna heilbrigðislausna og fjarheilbrigðisþjónustu.G æði og árangursmælingarVinnur að þróun gæðavísa, mælikvarða og gagnadrifinnar þjónustu.VerkefnastjórnunHeldur utan um verkefni, vinnuhópa og eftirfylgni aðgerða í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.Samstarf og ráðgjöfVeitir stuðning og ráðgjöf varðandi innleiðingu breytinga, nýsköpun og umbætur í starfsemi.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af hjúkrun hjartasjúklinga æskileg
Reynsla af verkefnastjórnun, umbótastarfi eða þróunarverkefnum kostur
Þekking á gæðastarfi, þjónustuþróun eða stafrænum lausnum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð samskipta og samstarfshæfni
Skipulagshæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir
Áhugi á nýsköpun, þróun heilbrigðisþjónustu og breytingastjórnun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í þróunar og umbótaverkefnum í hjartaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
17.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026