
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í eldhúsi- HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Starfsmaður í eldhúsi- HSN Dalvík-Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Dalvík-Fjallabyggð leitar að jákvæðum og ábyrgum starfsmanni til tímabundinna starfa í eldhús Hornbrekku. Starfshlutfall er 50% og felur starfið í sér fjölbreytt verkefni þar sem lögð er áhersla á gott samstarf, fagmennsku og hreinlæti. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á HSN Dalvík-Fjallabyggð starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og framreiðsla máltíða í samræmi við verklagsreglur
Aðstoð við matreiðslu og bakstur
Uppvask, þrif og almennur frágangur í eldhúsi
Móttaka og meðhöndlun hráefna
Tryggja að reglum um hreinlæti og matvælaöryggi sé fylgt
Samstarf við annað starfsfólk við að tryggja góða þjónustu
Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda
Hæfniskröfur
Reynsla af störfum í eldhúsi er kostur
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
Hæfni til að vinna í teymi og taka þátt í góðu samstarfi
Almenn hollustuhátta- og hreinlætisvitund
Stundvísi og þjónustulund
Íslensku- eða enskukunnátta skilyrði
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir
Tölvupóstur: sylvia.dogg.hjorleifsdottir@hsn.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í eldhúsi- HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026