
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
10.07.2026
Umsóknarfrestur
07.08.2026
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á lyflækningadeild B7 í Fossvogi.
Við bjóðum nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing jafnt sem reynslumikinn velkominn í okkar góða hóp. Í boði er einstaklingsbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Deildin er 19 rúma bráðalegudeild almennra lyflækninga. Þar starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Upphaf starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Rut, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrun sjúklinga deildar
Skipuleggja hjúkrun sjúklinga og skrá meðferðir í samræmi við reglur spítalans
Fylgjast með nýjungum í faginu
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður
Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og frumkvæði
Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og færni til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Rut Tryggvadóttir
Tölvupóstur: rutt@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
10.07.2026
Umsóknarfrestur
07.08.2026