
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun á bæklunarskurðdeild AB5
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
10.07.2026
Sérfræðingur í hjúkrun á bæklunarskurðdeild AB5
Starf sérfræðings í hjúkrun aðgerðasjúklinga á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi er laust til umsóknar frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.
Við leitum eftir einstaklingi sem hefur hæfileika til að leiða fólk saman, býr yfir farsælli reynslu af teymisstjórnun og leggur áherslu á að byggja upp traust og efla sálrænt öryggi í samstarfi.
Sérfræðingur í hjúkrun aðgerðasjúklinga á bæklunarskurðdeild starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Starfar að framþróun hjúkrunar á deildinni, gæða- og umbótaverkefnum, ráðgjöf, kennslu og fræðslustarfsemi til starfsfólks og nemenda og tekur þátt í akademískri vinnu með þátttöku í rannsóknastarfi. Auk þess er gert ráð fyrir að sérfræðingur starfi við klínísk störf á deildinni. Starfið felur jafnframt í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við skjólstæðinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Bæklunarskurðdeild er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum er tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi. s.s. eftir gerviliðaaðgerðir og hryggspengingar.
Sérfræðingur í hjúkrun vinnur sjálfstætt skv. reglugerð nr. 512/2013 og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun hjúkrunar og þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra innan sérgreinar
Frumkvæði að gæðaumbótum og innleiðingu nýrra verkferla meðal annars með markmið Landspítala í huga (óráð, þrýstingssár og byltuvarnir)
Er leiðandi í faglegri starfsþróun í hjúkrun aðgerðasjúklinga
Klínísk störf á skurðlækningadeild
Kennsla og fræðsla til starfsfólks, nemenda í grunn- og framhaldsnámi í heilbrigðisgreinum
Þátttaka í rannsóknarstarfi
Ráðgjöf til sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks
Stuðlar að góðum starfsanda og teymisvinnu sem einkennist af trausti og sálrænu öryggi starfsfólks
Hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi sem sérfræðingur í hjúkrun
Starfsreynsla í hjúkrun aðgerðarsjúklinga
Mjög góð leiðtoga- og samskiptahæfni
Víðtæk reynsla af teymisvinnu
Reynsla af gæða og umbótaverkefnum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, sérfræðingur í hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun á bæklunarskurðdeild AB5
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
10.07.2026