Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðhlynning Móberg Selfossi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Aðhlynning Móberg Selfossi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) leitar að öflugu og jákvæðu starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi.

Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem þú vinnur með metnaðarfullum og samheldnum hópi starfsfólks.Starfið hentar vel bæði sem sumarstarf og áframhaldandi starf í haust.

Við leggjum mikla áherslu á gott þverfaglegt samstarf þar sem fagmennska, virðing og umhyggja fyrir íbúum og fjölskyldum þeirra eru í fyrirrúmi.

Starfsemin á Móbergi byggir á Eden-hugmyndafræðinni, þar sem áhersla er lögð á lífsgæði, virkni og einstaklingsmiðaða nálgun í daglegu lífi. .

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðhlynning og umönnun íbúa

  • Þátttaka í daglegu starfi og virkni íbúa

  • Samstarf við fjölbreyttan hóp fagfólks

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um fyrri störf og meðmæli.

Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi.Skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Tryggvadóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: asta.tryggvadottir@hsu.is

Margrét Andersdóttir

Aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: margret.andersdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðhlynning Móberg Selfossi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026