
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2026
Umsóknarfrestur
06.08.2026
Verkefnisstjóri styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hlutverk verkefnisstjórans er að styðja við rannsóknastarf á sviðinu með ráðgjöf og þjónustu við rannsakendur. Starfið heyrir undir rannsóknarstjóra Menntavísindasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsýsla og fjárhagslegt utanumhald innlendra og erlendra rannsóknaverkefna á Menntavísindasviði.
Ábyrgð á skráningu og eftirfylgni fjárhagsupplýsinga rannsóknaverkefna og að bókhaldsgögn séu rétt skráð og uppfærð á hverjum tíma.
Stuðningur við starfsfólk við gerð umsókna í innlenda og alþjóðlega rannsóknasjóði og styrkjaáætlanir.
Miðlun upplýsinga um reglur og kröfur styrkveitenda sem fjármagna rannsóknir.
Þátttaka í innleiðingu stefnu Háskóla Íslands um rannsóknatengd málefni, svo sem skráningu rannsókna, gagnastjórnun og aðgangsstýringar.
Skráning upplýsinga um rannsóknir í viðeigandi gagnagrunna.
Umsjón með upplýsingasíðu um rannsóknastyrki og rannsóknaverkefni á innri vef.
Fræðsla og ráðgjöf til starfsfólks Menntavísindasviðs um rannsóknastyrki og rannsóknatengd málefni.
Þátttaka í öðrum fjármála- og stjórnsýsluverkefnum Menntavísindasviðs eftir þörfum.
Hæfniskröfur
Háskólagráða sem nýtist í starfi. Doktorspróf er kostur.
Reynsla af þátttöku í alþjóðlegum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum og/eða umsóknagerð og umsýslu slíkra verkefna er æskileg.
Reynsla af fjárhagsumsýslu og bókhaldi.
Þekking á styrkjakerfi rannsókna og nýsköpunar og helstu innlendum og alþjóðlegum rannsóknasjóðum er kostur.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Hæfni til að setja fram upplýsingar á skýran, hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt.
Gott vald á upplýsingatækni, meðal annars Excel, og hæfni til að tileinka sér nýjar lausnir og kerfi.
Rík þjónustulund, frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að ráðningarferli lýkur, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Starfsstöðin er á sviðsskrifstofu Menntavísindasviðs í Sögu við Hagatorg.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli ámálstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Harðardóttir
Tölvupóstur: krishar@hi.is
Lára Rún Sigurvinsdóttir
Tölvupóstur: lararun@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2026
Umsóknarfrestur
06.08.2026