Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi Lands og skógar á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.06.2026

Umsóknarfrestur

06.07.2026

Ráðgjafi Lands og skógar á Austurlandi

Land og skógur auglýsir eftir ráðgjafa á Austurlandi með aðsetur á Egilsstöðum. Í starfinu felast fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar landnýtingar.

Land og skógur er þekkingar- og þjónustustofnun sem vinnur að uppbyggingu og vernd gróður- og jarðvegsauðlinda á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta ástand þeirra og stuðla að sjálfbærri landnýtingu. Stofnunin sinnir verkefnum á sviði landgræðslu, endurheimtar vistkerfa, nýskógræktar, umhirðu og friðunar skóga með það að markmiði að efla umhverfislegan, samfélagslegan og hagrænan ávinning sjálfbærrar landnýtingar. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018 og lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf, áætlanagerð og eftirlit með verkefnum sem miða að endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu

  • Öflun og skráning upplýsinga um endurheimtaraðgerðir og árangur þeirra

  • Vöktun og mat á ástandi gróðurs og jarðvegs og þátttaka í árlegum vöktunarverkefnum

  • Fræðsla og ráðgjöf til hagaðila, svo sem bænda og annarra landnotenda, sveitarstjórna, fyrirtækja, skóla og almennings

  • Önnur tilfallandi verkefni Lands og skógar í samráði við samstarfsfólk og næsta yfirmann

Hæfniskröfur

  • BSc-gráða í náttúruvísindum með áherslu á sjálfbæra landnýtingu, búvísindi, vistfræði, umhverfisfræði eða annað nám sem sannanlega nýtist í starfi

  • Haldbær reynsla og/eða þekking á verkefnum sem miða að endurheimt vistkerfa, t.d. landgræðslustörfum er kostur

  • Þekking og reynsla af landbúnaði er kostur

  • Færni í notkun landupplýsingakerfa er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórn, ráðgjöf og áætlanagerð er kostur

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Gott vald á íslensku og færni til að koma frá sér upplýsingum í ræðu og riti

  • Góð almenn tölvukunnátta og færni í Office-forritum

  • Gild ökuréttindi á beinskipta fólksbifreið er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Megin starfssvæðið er Austurland og starfinu geta fylgt talsverð ferðalög. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf fljótlega.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum umsagnaraðila. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jónína Sigríður Þorláksdóttir

sviðsstjóri Þjónustu, ráðgjafar og umbreytingar

Tölvupóstur: jonina.sigridur.thorlaksdottir@landogskogur.is

Sími: 5705595

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi Lands og skógar á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.06.2026

Umsóknarfrestur

06.07.2026