Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026

Hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi

Ertu lausnamiðaður hjúkrunarfræðingur sem hefur gaman af samskiptum?

Flæðisdeild óskar eftir að ráða til sín öflugan hjúkrunarfræðing með fjölbreytta starfsreynslu til starfa í útskriftarteymi flæðisdeildar Landspítala. Leitað er að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á Landspítala og heilbrigðiskerfinu, er góður í samskiptum og nýtur þess að vinna bæði sjálfstætt og í teymum.

Útskriftarteymið veitir starfsfólki, sjúklingum og aðstandendum ráðgjöf og stuðning við skipulagningu og framkvæmd flókinna útskrifta. Á flæðisdeildinni starfa innlagnastjórar og útskriftarteymi í nánu samstarfi með það að markmiði að tryggja sem besta dvöl sjúklinga á Landspítala, þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar að leiðarljósi.

Hópurinn er samheldinn, metnaðarfullur og leggur áherslu á gott samstarf. Starfsfólk er hvatt til að kynna sér starfsemi helstu samstarfsaðila með vettvangsheimsóknum, auk þess sem lögð er rík áhersla á símenntun og reglulega fræðslu.

Um er að ræða dagvinnu og möguleiki er á innlagnavöktum samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100% og starfið er laust frá 1. september 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefni tengd undirbúningi útskrifta

  • Tengiliður tilgreindra legudeilda og vinna með teymum að farsælum útskriftum og flæði sjúklinga

  • Stuðningur við legudeildir Landspítala vegna flókinna útskrifta

  • Ráðgjöf til sjúklinga og aðstandenda um þjónustu og mismunandi útskriftarúrræði

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Góð samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð

  • Fjölbreytt starfsreynsla og góð þekking á Landspítala og heilbrigðiskerfinu

  • Reynsla af útskriftarmálum er kostur

  • Brennandi áhugi á að vinna með fólki og fyrir fólk

  • Lausnamiðuð hugsun

  • Faglegur metnaður

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5 Reykjavík

Staðsetning: Fossvogur, 108

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Katla Swan

Tölvupóstur: kristisw@landspitali.is

Garðar Örn Þórsson

Tölvupóstur: gardarth@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026