Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í fjármálaráði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.07.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026

Sérfræðingur í fjármálaráði

Fjármálaráð leitar að metnaðarfullum sérfræðingi með sterka greiningarfærni og brennandi áhuga á efnahagsmálum og opinberum fjármálum.

Fjármálaráð starfar samkvæmt lögum um opinber fjármál og er sjálfstætt í störfum sínum. Ráðinu er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Hlutverk ráðsins er að leggja mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um. Einnig er ráðinu ætlað að greina og vakta stöðu og horfur um framleiðni og samkeppnishæfni hagkerfisins. Sjá nánar á Stjórnarráðið | Fjármálaráð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greiningar og mat á fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisins.

  • Greiningar á stöðu og horfum í opinberum fjármálum.

  • Greiningar á stöðu og horfum um framleiðni og samkeppnishæfni hagkerfisins.

  • Ritun álita, skýrslna og annars greiningarefnis.

  • Kynningar á stöðu og þróun í ræðu og riti.

  • Samstarf og samskipti við innlendar og erlendar stofnanir, hagaðila á sviði opinberra fjármála og aðila vinnumarkaðarins.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði hagfræði eða tengdum greinum.

  • Góð þekking á efnahagsmálum í þjóðhagslegu samhengi.

  • Góð greiningarfærni sem nýtist í starfi.

  • Góð færni í hagnýtingu gagnavinnsluforrita og tölfræðilegri úrvinnslu til að greina og miðla tölulegum upplýsingum.

  • Gagnrýnin hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.

  • Mjög góð samskiptahæfni auk hæfni til að taka þátt í teymisvinnu.

  • Reynsla af opinberri hagstjórn eða þekking á starfsemi ríkisins er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Sérfræðingur fjármálaráðs vinnur náið með formanni fjármálaráðs auk annarra nefndarmanna ráðsins en formaður ráðsins er staðsettur í Háskóla Íslands.

Ráðning sérfræðings fjármálaráðs er í umsjón fjármála- og efnahagsráðuneytisins en starfsmaður fjármálaráðs sinnir störfum fyrir fjármálaráð og heyrir faglega undir ráðið. Fjármálaráð er sjálfstætt í faglegum störfum sínum og setur sér starfsreglur og vinnur óháð stjórnvöldum að mati á stefnumörkun í opinberum fjármálum.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmi, auk annarra þátta, heildstætt inn í hæfnimatið. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.

Nánari upplýsingar veitir formaður fjármálaráðs, Arnaldur Sölvi Kristjánsson, dósent við Háskóla Íslands. Netfang: arnaldur.solvi.kristjansson@fjarmalarad.is. Sími: 834-5602.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Gunnarsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gunnarsdottir@fjr.is

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í fjármálaráði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.07.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026